Print

Loksins er nýtt afsprengi hljómsveitarinnar komið úr hljóðblöndun. Lagið heitir 'Lyftu mér upp' og er á leiðinni í dreifingu á útvarpsstöðvar.

{mp3_gallery}/images/stories/studio/2010-09/{/mp3_gallery}



Eldra efni með Góðum Landsmönnum

Print

Hljómsveitin Góðir Landsmenn var stofnuð 2005. Undanfarin 2 ár hefur hljómsveitin notið sívaxandi vinsælda á ballmarkaði.

Góðir Landsmenn er 6 manna hljómsveit og eru núverandi meðlimir hljómsveitarinnar eftirfarandi:
Katrín Ósk Einarsdóttir - Söngur
Jónas Friðrik Steinsson - Söngur og gítar
Stefán H. Henrýsson - Hljómborð, píanó og bakrödd
Kristinn Sturluson - Gítar og bakrödd
Haraldur Leonhardsson - Trommur
Halldór Halldórsson - Bassi og bakrödd

Katrín Ósk Einarsdóttir Jónas Friðrik Steinsson Stefán H. Henrýsson kristinn sigurpall_sturluson Haraldur Leonhardsson Halldór Halldórsson

Hljómsveitin var stofnuð árið 2005 af þeim Haraldi Leonhardssyni og Halldóri Halldórssyni. Fyrstu ár hljómsveitarinnar var stefnan tekin á almennan ballmarkað og var prógramið hlaðið hinum og þessum skemmtilegum ullarsokkum.

Fyrsta opinbera gigg hljómveitarinnar var í Pakkhúsinu á Selfossi í febrúar 2006 og var bandið þá skipað eftirfarandi meðlimum:
Guðbjörg Ingólfsdóttir - Söngur
Margrét Sigurjónsdóttir - Bakraddir
Valdimar Kristjónsson - Hljómborð, píanó og bakrödd
Björn Valur Guðjónsson - Gítar og bakrödd
Haraldur Leonhardsson - Trommur
Halldór Halldórsson - Bassi og bakrödd

Í desember 2006 hætti Valdimar í hljómsveitinni og í hans stað kom Baldur Sigurðarson, oftast nefndur Ofur-Baldur, en hann spilaði áður í hljómsveitunum Átta-Villt og Langbrók. Í mars 2007 urðu gítarleikaraskipti í hljómsveitinni og gekk Karl Hákon Karlsson þá til liðs við bandið. Ofur-Baldur sagði skilið við hljómsveitina og haustið 2007 gekk Geir Gunnlaugsson til liðs við hljómsveitina. Á svipuðum tíma sögðu þær Margrét og Guðbjörg skilið við hljómsveitina en í þeirra stað kom Guðný Rögnvaldsdóttir sem áður var í dúettinum Gís, sem náði ansi langt í X-Factor árið 2007.

Snemma árið 2008 varð hljómsveitin söngvaralaus. Fyrir einstaka tilviljun rakst Haraldur á gamlan félaga sinn úr Nýja Mússíkskólanum, Jónas Friðrik Steinsson, sem gerði garðinn frægan á austurlandi með hljómsveitinni Benjamín á bjöllunni, á árunum 1994 til 1996. Eftir fyrstu æfinguna var Jónas fengin til liðs við bandið. Skömmu síðar kom upp sú hugmynd að auðga prógram hljómsveitarinnar með því að fá söngkonu til liðs við hljómsveitina og fletti Jónas þá upp fyrrverandi samstarfskonu sinni, Katrínu Ósk Einarsdóttur en þau tóku bæði þátt í X-Factor árið 2007.

Meðlimaskipan Góðra Landsmanna frá 2008 til 2010:
Katrín Ósk Einarsdóttir - Söngur
Jónas Friðrik Steinsson - Söngur og gítar
Geir Gunnlaugsson - Hljómborð, píanó og bakrödd
Karl Hákon Karlsson - Gítar og bakrödd
Haraldur Leonhardsson - Trommur
Halldór Halldórsson - Bassi og bakrödd

Eftir að söngparið gekk til liðs við Góða Landsmenn nýtti hljómsveitin tækifærið til að taka til á lagalistanum. Eldri og hefðbundnari balllög viku fyrir fersku og nýlegu efni sem fáar hljómsveitir leika eftir. Söngvararnir eru bæði með háar og kraftmiklar raddir sem falla vel saman.

Þetta nýja prógram var fljótt að grípa ballgesti og hefur orðspor hljómsveitarinnar spurst hratt út. Hljómsveitin var fengin til að semja lag Franskra Daga á Fáskrúðsfirði árið 2009 og lagðist lagið svo vel í gesti og aðstandendur hátíðarinnar að Góðir Landsmenn voru fengnir til að semja lag hátíðarinnar árið 2010 líka. Hljómsveitin var fljót að ná fótfestu hjá yngri ballgestum en hefur samt náð að halda góðu jafnvægi milli nýs og eldra efnis og er því hægt að segja að hljómsveitin geti þjónað öllum aldurshópum.

Snemma árið 2010 ákváðu Karl Hákon og Geir að segja skilið við hljómsveitina og einbeita sér að öðrum verkefnum. Í stað þeirra gengu Stefán Henrýsson, fyrrverandi hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Sóldögg og Bragi Bragason gítarleikari, sem meðal annars spilaði sem sessionleikari með Ný Dönsk snemma á ferli þeirrar hljómsveitar og spilaði lengi vel með hljómsveitinni Langbrók, til liðs við Góða Landsmenn. Fyrsta ball hljómsveitarinnar með þessum nýja mannskap var haldið á Lundanum í Vestmannaeyjum sumarið 2010, þar sem hljómsveitin sló eftirminnilega í gegn.

Frá árinu 2010 til nóvembermánaðar 2011 var meðlimaskipan Góðra Landsmanna eftirfarandi:
Katrín Ósk Einarsdóttir - Söngur
Jónas Friðrik Steinsson - Söngur og gítar
Stefán H. Henrýsson - Hljómborð, píanó og bakrödd
Bragi Bragason - Gítar og bakrödd
Haraldur Leonhardsson - Trommur
Halldór Halldórsson - Bassi og bakrödd

Í nóvember 2011 ákvað Bragi gítaristi að yfirgefa hljómsveitina vegna anna og í staðinn fyrir hann gekk til liðs við okkur  ofurgítaristinn Kristinn Sigurpáll Sturluson.

Hljómsveitin er fyrst og fremst ballhljómsveit af bestu gerð og hefur yfir gífurlegri spilareynslu að ráða. Hljómsveitin hefur leikið allt frá Írskri þjóðlagatónlist upp í kröftugt rokk og hefur yfir einu fjölbreyttasta prógrammi í bransanum að ráða.

Print

{mp3_gallery}/images/skrar/MP3/GL/{/mp3_gallery}

Print
{mp3_gallery}/images/skrar/MP3/GL{/mp3_gallery}
Print

{jsmallfib}

lisa-04