Print

Patró.. taka 2.

Ég hef eiginlega ekki hætt að brosa síðan ég frétti að okkur væri boðið aftur til Patró, að spila á árshátíð. Eitt af því fyrsta sem ég gerði þegar þetta var orðið staðfest, var að byrja að pakka tannburstanum og hreinum sokkum. Halli trommari sagði að vísu að það væri kannski full snemmt að byrja að pakka, þar sem ennþá væru 3 vikur í ballið, en ég pakkaði samt!

Ferðin á Patró gekk stórslysalaust fyrir sig. Við tróðum lífsins nauðsynjum og 6 manns inn í sendiferðabíl, smelltum merktu seglunum okkar utan á bílinn og rúntuðum af stað í leiðinda veðri. Við vorum rétt komin út fyrir Mosó þegar vindurinn var orðin slíkur að hann reif tvo af fínu, merktu bílaseglunum okkar af bílnum (endilega hafðu samband við okkur ef þú finnur þá). Þá var tekið örstutt stopp meðan allraveðrahetjan og tetrismeistarinn Bragi stökk út úr bílnum að leita að seglunum og bjarga þeim seglum sem eftir voru.

Þrátt fyrir hálku og snjófjúk mættum við á Patró rúmum 7 tímum eftir brottför, þar sem við fengum hlýjar móttökur og var leiðbeint á gistiheimilið þar sem búið var að bóka fyrir okkur herbergi yfir helgina. Eftir stutt stopp þar rukum við niður í félagsheimili að róta úr bílnum til að græjurnar fengju að vera inni í hitanum yfir nóttina.

Við sváfum eins og englar um nóttina, utan við Stebba og Braga, sem gátu lítið sofið út af hrotum í herbergisfélögum þeirra. Ákveðið var því fyrir næstu nótt að Stebbi og Bragi deildu herbergi og hinir óprúttnu, svefnstelandi hrotuþrjótar yrðu saman í herbergi. Þessi ákvörðun var tekin í fullkominni sátt, þar sem við Dóri höfum oft deilt herbergi á ferðalögum hljómsveitarinnar, meðal annars í Þýskalandi í fyrra. Við þekkjum því hroturnar í hvor öðrum ansi vel.

Daginn eftir hófst undirbúningurinn fyrir ballið fyrir alvöru. Við stilltum upp græjunum okkar og eyddum síðan góðum tíma í að ná fram hinu eina, sanna Góðra Landsmanna soundi.

Patreksfirðingar voru búnir að plata okkur til að taka þátt í skemmtiatriðum kvöldsins, með undirleik í lokaatriðinu. Hljómsveitin spilaði hið fróma Joe Cocker lag 'You can leave your hat on' af innlifun á meðan nokkrir 'bóndar' dönsuðu nektardans. Skömmu seinna, hófst ballið með látum og lauk ekki fyrr en bandinu var sagt að stoppa.

Eftir ballið tókum við okkur til og gengum frá okkar tækjum og tólum til að auðvelda okkur verkið daginn eftir, sem var eins gott þar sem við vorum vakin upp um 11 um morguninn, þar sem veður fór versnandi og allt stefndi í að heiðarnar á leiðinni yrðu illfærar mjög fljótt. Við rukum til og náðum í dótið okkar og rukum af stað heim eins hratt og við gátum.

Það var því þreyttur, en afskaplega ánægður hópur sem kom í bæinn snemma á sunnudagskvöldinu eftir afskaplega vel heppnaða ballferð á Patró. Ég vil, fyrir hönd Góðra Landsmanna, þakka Patreksfirðingum móttökurnar og lýsa því yfir að ég er strax farin að hlakka til næstu ferðar.

Höfundur: Jónas jóðlariPosted in: Fréttir

lisa-04