Lundarreykjadalur
Þegar undirritaður fékk að vita að við ættum að spila á þorrablóti í Lundarreykjadal, var ekki laust við að ég fengi smá fyrir hjartað. Ég hafði aldrei komið upp í Lundarreykjadal og vissi satt að segja eiginlega ekki neitt um svæðið. Mér leið strax talsvert betur þegar við renndum í hlaðið á Brautartungu, gengum inn og hittum nefndarfólkið, sem vann hörðum höndum að því að skreyta salinn með gömlum reiðtygjum og lopapeysum. Eftir að við höfðum klárað að stilla upp var okkur vísað í sófaherbergi þar sem uppdekkað borð beið okkar. Ég verð að skjóta því hér að, að maturinn og aðstaðan sem við nutum á staðnum voru til fyrirmyndar og við nutum vistarinnar í Brautartungu til hins ýtrasta.
Þegar ballið byrjaði kom það okkur strax í opna skjöldu hvað allir, ungir sem aldnir, karlkyns og kvennkyns voru klár í dans. Ég hef aldrei séð dansgólf fyllast eins hratt og haldast fullt allt ballið.
Um leið og ég þakka kærlega fyrir okkur vil ég endilega hvetja ykkur til að fara að huga að þorrablótsbókunum fyrir næsta ár. Við erum nefnilega farin að fá fyrirspurnir nú þegar ;-)





