Print

Og Landsmönnum fjölgar enn!!

lisa

Eins og glöggir ballgestir hafa tekið eftir er hún Katrín okkar farin í smá meðgönguleyfi. Til að hlaupa í skarðið í hennar stað fengum við ofur-söngkonuna Lísu Einarsdóttur sem flestir muna glögglega eftir úr Idol Stjörnuleit og Íslensku sveitinni. 

Laugardaginn 22.01.2012 kíkkuðu Lísa, Jónas og Kiddi til Heiðu og Ævars á Rás2 í spjall og smá kassagítaradjamm. Við fengum góðfúslegt leyfi frá Heiðu til að birta viðtalið hér. 

 

Print

Dagvinnan þvælist stundum fyrir....

Vegna anna hefur ofur-gítaristinn okkar hann Brabra (Bragi Bragason) sagt skilið við hljómsveitina. Um leið og við þökkum honum fyrir samveruna og samstarfið síðustu 2 árin kynnum við til leiks nýjan meðlim hljómsveitarinnar, hinn alkunna rokkgítarista, hljóðmann og upptökusnilling Kristinn Sturluson.

kristinn sigurpall_sturluson

Print

Dúbbl á SPOT

Dagana 12. og 13. ágúst brilleruðu Góðir Landsmenn á SPOT. Mig langar að þakka þeim sem rokkuðu fram undir morgun með okkur og jafnframt biðja Þórð frænda minn afsökunar á að hafa ekki tekið 'Here I go again' fyrir hann eins og hann var búin að biðja mig um. Rennum í það næst Þórður!

Print

Úthlíð um versló 2011

Eins og glöggir hafa tekið eftir verða Góðir Landsmenn í Réttinni í Úthlíð Biskupstungum (rétt áður en komið er að Geysi) um Verzlunarmannahelgina, annað árið í röð. Þetta árið, líkt og í fyrra hefjum við fjörið kl. 16:00 með barnaskemmtun laugardaginn 30.07., höldum síðan fjörinu áfram um kvöldið kl 22:00 með brekkusöng og æðum svo beint á svið á langskemmtilegasta verzlunarmannahelgarballi aldarinnar. Í fyrra var stappfullt hús og meiriháttar stemning. Nánari upplýsingar má finna á uthlid.is

Sjáumst í Úthlíð..

lisa-04