Velkomin á vef Góðra Landsmanna

Hljómsveitin Góðir Landsmenn er danshljómsveit af bestu gerð sem var stofnuð 2005 og hefur notið sívaxandi vinsælda á ballmarkaði.
Við bjóðum upp á mjög fjölbreytt, gott og skemmtilegt lagaval sem hefur virkað gríðarlega vel á böllum. Við spilum lög úr öllum áttum bæði ný og gömul, íslensk og erlend, og erum með gott úrval af 80´s lögum ásamt fullt af öðru skemmtilegu enda viljum við að allir geti skemmt sér með okkur óháð aldri, lagalista má sjá hér á ofar á síðunni.
Við erum 6 manna stuð band með 2 frábæra söngvara (karl og konu), mannskap með mikla reynslu af alls kyns spilamennsku og höfum spilað bæði hérlendis og erlendis. Við getum tekið að okkur stóra sem smáa viðburði hvort sem um er að ræða árshátíð, bjórkvöld, brúðkaup, skólaball, þorrablót eða hvað sem er.
Getum einnig útvegað dinnerpíanóleikara, veislustjóra, töframenn, eldlistamenn og fleira.
Hægt er að senda okkur fyrirspurnir varðandi bókanir í gegnum "hafðu samband" tengilinn hér ofar á síðunni, einnig er hægt að hringja í Halla í síma 898-3256





